Traustar lagnir. Örugg kerfi.
Við sinnum allri almennri pípulagningavinnu, hvort sem um er að ræða nýlagnir, breytingar, viðhald eða viðgerðir. Markmið okkar er að veita faglega og trausta þjónustu og finna góðar lausnir fyrir hvert verkefni.
Okkar þjónusta
Almennar pípulagnir
Við tökum að okkur alla almenna pípulagningavinnu fyrir heimili, fyrirtæki og fasteignir.
Nýbyggingar
Lagnir fyrir nýbyggingar, breytingar og endurbætur – frá upphafi til verkloka
Viðhald og viðgerðir
Við greinum bilanir, sinnum viðgerðum og sjáum um reglubundið viðhald lagna og kerfa.
Ráðgjöf og lausnir
Fagleg ráðgjöf um lagnir og kerfi, skipulag framkvæmda og lausnir sem henta hverju verkefni.
Algengar spurningar
Hér finnur þú svör við algengum spurningum um Lagnir og kerfi.
-
Við tökum að okkur fjölbreytt verkefni í pípulögnum, meðal annars almennar viðgerðir, lekaleit, endurnýjun lagna, pípulagnir í nýbyggingum, drenlagnir og snjóbræðslukerfi.
-
Já. Við sinnum bæði litlum og stórum verkefnum, hvort sem um er að ræða lekandi vask, bilað blöndunartæki, salerni eða stærri framkvæmdir.
-
Já. Við vinnum fyrir einstaklinga, húsfélög, fyrirtæki, verktaka og aðra sem þurfa á faglegri pípulagningaþjónustu að halda.
-
Já. Við sjáum um pípulagnir í nýbyggingum, þar á meðal neysluvatnslagnir, hitalagnir, fráveitu og önnur tengd kerfi.
-
Já. Við tökum að okkur endurnýjun og breytingar á eldri lagnakerfum, bæði við uppgerðir og þegar nauðsynlegt er að bæta eða endurnýja núverandi kerfi.
-
Já. Við tökum að okkur drenlagnir og aðrar lausnir sem tengjast frárennsli og vatnsstýringu í kringum fasteignir.
-
Við sinnum verkefnum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni. Hafðu samband ef þú ert óviss hvort við getum tekið að okkur verkefni á þínu svæði.
-
Það fer eftir umfangi verkefnisins og verkefnastöðu hverju sinni. Við reynum þó alltaf að bregðast hratt við, sérstaklega þegar um leka eða brýn vandamál er að ræða.
Af hverju að velja Lagnir og Kerfi?
Fagleg vinnubrögð
Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, snyrtilega framkvæmd og að verkið sé unnið rétt frá upphafi.
Fljót og persónuleg þjónusta
Við leggjum okkur fram um að bregðast hratt við, vera aðgengileg og halda samskiptum einföldum og skýrum.
Reynsla og traust
Við byggjum þjónustuna á reynslu, fagmennsku og trausti með það að markmiði að skila góðri lausn.
Lagnir og kerfi er fjölskyldurekið pípulagningafyrirtæki sem sinnir fjölbreyttum verkefnum fyrir einstaklinga, fyrirtæki og verktaka.
Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð, skýr samskipti og vandaðar lausnir sem endast. Hvort sem um er að ræða litla viðgerð, endurnýjun lagna eða stærri framkvæmd, nálgumst við hvert verkefni af ábyrgð og metnaði.
Þú ert í traustum höndum
Við sinnum fjölbreyttum verkefnum
“Haukur og Freyr eru fagmenn fram í fingurgóma. Þeir komu og lögðu lagnir fyrir heitan og kaldan pott í garðinum hjá okkur. Einnig tóku þeir að sér að laga dren í kringum húsið. Þeir eru snöggir að vinna og gæði vinnunnar voru mjög góð.”
- Arnar Hinriksson“Lagnir og kerfi sáu um allar lagnir og kerfi í 14 íbúðum í Garðabæ. Þeir eru sérfræðingar á sínu sviði og skiluðu verkefninu af sér með miklum sóma.”
- Sigurður Guðmundsson“Vönduð vinnubrögð og snöggir að bregðast við þegar það kom upp leki á baðherberginu okkar. Við urðum að hafa hraðar hendur og þeir fundu og löguðu lekann hratt og örugglega.”
- Arnheiður, íbúi í Hafnarfirði