Um okkur

Lagnir og kerfi er fjölskyldurekið pípulagningafyrirtæki með áherslu á fagmennsku, traust og góða þjónustu. Við tökum að okkur fjölbreytt verkefni fyrir einstaklinga, fyrirtæki og verktaka, allt frá minni viðgerðum yfir í stærri framkvæmdir.

Við leggjum áherslu á skýr samskipti, vönduð vinnubrögð og lausnir sem endast.

Haukur er menntaður pípulagnameistari með 15 ára reynslu í faginu. Freyr kláraði sveinspróf í pípulögn árið 2015 en saman mynda þeir öflugt teymi.